Þegar eitthvað er að tala um.......

15.08.2008 06:26:50 / Berglind

Sælir vinir

Jæja sumarið farið að síga á seinni endan og margt búið að vera nóg að gera.
Fór til Lúxemborg með Hrefnu og heimsóttum Elsu pelsu, Nonna og Sváfni. Lentum þar í 40 afmælis matarboði hjá íslenskum vinum þeirra og fengum eðal lamb og marengsköku að íslenskum hætti. Vorum úti á þjóðhátíðardeginum og að því tilefni var Landsbankinn með partý sem okkur var smyglað með í. Þvílíkar kræsingar í boði ó boy ó boy enduðum náttla skrallandi glaðar og saddar eftir það. Elsa sá til þess að við smökkuðum hinar og þessar bjór og hvítvínstegundirnar. Skoðuðum hella undir höllinni, fórum til Trier og Metz og sváfum út :)
Fór svo í 9 daga ferðalag á Hornstrandir með 29 manna hóp þar sem 19 af okkur gengum alls 70 km á 6 dögum frá Hornbjargsvita-Hornvíkur-Hlöðuvíkur-Aðalvíkur-Hesteyrar þar sem við vorum sótt á bátnum Ramónu og eyddum 2 dögum í Grunnavík í góðu yfirlæti hjá Friðrik og Sigurrós. Þessi ferð var ein besta hvíld sem ég hef fengið í ferðalagi. Alveg yndislegt að komast í burt frá nútíma asanum og vitleysunni í tímaleysið, símaleysið og allt það :) Mæli með því fyrir alla að reyna þetta. Eins og auðjöfurinn sagði "það er svo gott að komast í svona ekkert".

Þjóðhátíð hjá mér stóð í 3 daga og var tekin með trompi. Hreinlega gat ekki hætt að skemmta mér og svaf afskaplega lítið á næturnar en vakti mikið, dansaði, söng og hitti fullt af æðislegu fólki. BARA GAMAN :))))

Framundan er 100 manna afmælisveisla Höllu sem er orðin 30 ára skvísa og er ég búin að taka að mér að vera veislustjóri. Verður það frumraun mín sem slíkur og gaman að sjá hvernig fer. Veit ekki hvort ég muni leggja það fyrir mig í framtíðinni, held ég haldi mig við hjúkrunina í bili ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 03:56:44 / Berglind

Á árinu hefur þetta gerst

Velti því fyrir mér hvort eitthver sé að lesa þetta blogg núna. En ef svo er þá er þetta að frétta ;)
Búin að vinna og vinna og vinna í allan vetur og nú er að koma að sumarfríi. Planið er að fara til Luxemburg í nokkra daga og hitta hina yndisfríðu Elsu Dórótheu og Jón vignir og son þeirra. Hrefna vinkona slæst í för og ætlum við að láta eftir okkur að versla, drekka hvítvín og slappa af. Plan nr 2 er að ganga á Hornstrandir og verður það gert í vikuferð í júlí. Núna er undirbúningurinn aðallega fólgin í því að ég er að skoða (og bráðum versla) útivistafatnað. Tel þolið vera þokkalegt og ætla bara að æfa eins og ég hef gert áður.
    Nýbúin að taka þátt í bíóatriði og mun kannski bregða fyrir í bíómyndinni The good heart þegar hún verður sýnd. Verða mínar 3 sek af frægð hehe.
     Búin að eignast fullt af vinkonubörnum og finnst þau vera að hrúgast upp. Þetta ætlar engan enda að taka. Óska öllum vinkonum mínum til hamingju með börnin og ólétturnar.
    Er alveg að verða laus við skuldir og get farið að safna eftir smá :)
    er ekki að fara flytja á þessu ári sem er alveg nýtt fyrir mér, ætla mér að búa í sömu íbúð áfram, vera á sama frábæra vinnustaðnum og keyra mínum frábæra Renault sem er víst komin með bílakrabba, vona hann endist í ár til viðbótar.
    Ég bý ennþá með fiðruðum einstaklingi að nafni Beggi og hann er alveg stórskemmtilegur eftir að hann hætti að vera hræddur við mig, sem gerðist allt í einu eina helgi í byrjun mars.

Man ekki meira merkilegt....jah nema það eru 3 dagar í síðasta 20 og eitthvað afmælið mitt 8|

BBG

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 16:06:22 / Berglind

ALive

Gleðilegt ár og allt það, takk fyrir gamla.

Er bara á lífi enn og brjálað að gera hér í vinnunni. Komin með páfagauk á heimilið og skemmti mér því milli vinnunnar og ræktarinnar við að reyna að hæna hann að mér og kenna honum að tala. Ákvað í minni ótrúlegu hugmyndasemi að skíra hann Begga. Þannig við búum nú tvö saman ég og Beggi ;)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 00:14:46 / Berglind

Orlando in a few.......

Nú nálgast Flórída ferðin mín ( og minna yndislegu bræðra og mágkonu) óðfluga. Ferðinni er heitið út þann 11.des. Hlakka geðveikt til og vona svo sannarlega að það verði heitt og gott þarna, þar sem það er sko langt frá því að vera gott hér á landi.

Allavega versla, sóla sig og missa það í rússíbönum er planið.....og svo náttla að sjá ömmu, afa og Jóku og co :)

Árdís verðum í sambandi ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 00:05:52 / Berglind

Laugardagslöginn

Eins og sannur eurovision aðdáandi er ég dottin ofan í laugardagslöginn og horfi stíft á þættina hvern laugardag. Í kvöld var engin undantekning. Eftir að hafa fylgst með honum Barða sem er að reyna afsanna þá kenningu sem gengur um hann að hann sé óhress maður er ég algjörlega á því að þessi kenning sé alröng. Þessi maður kemur mér alltaf til að hlæja. Hann er með þeim fyndnari sem ég hef séð og kvöldið í kvöld var engin undantekning. Lagið sló náttúrulega í gegn og nú er bara að sjá hvað vöðvamassarnir með ofurbrúnkuna, Gilzenegger og mjónan í gervileðurbuxunum komast langt.

Mæli með að kíkja á ruv.is og horfa á sjovið

 Áfram Barði!!!! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 11:34:59 / Berglind

Lítil splatter vinnusaga

Um daginn var ég að vinna eins og svo oft áður. En þessi dagur var aðeins öðruvísi en hinir dagarnir. Ég var að sinna sjúklingi sem var blóðlaus og þurfti blóðgjöf. Ég kom að rúminu þegar blóðpokinn var að klárast og sá að hafði komist loft í slönguna svo ég snillingurinn ætlaði að beita snilldar ráði sem ég lærði á veru minni á barnaspítalanum. Þetta ráð er að sprauta saltvatni upp í slönguna þannig að loftið leiti upp úr slöngunni. Þetta gerði ég og áhugasamur sjúkraliði og sjúklingurinn fylgdust með þessu snilldar verki hjá mér. Þegar ég er að ná loftinu upp kemur smá mótstaða sem er ekki óalgengt og ég gef bara meira inn. !! skyndilega finn ég hvernig ég verð öll blaut í framan. Ég þori ekki að opna augu né munn af ótta við hvað sé á á þeim geng inn á klósett með annað augað hálf opið, lýt í spegil og sé mig þar alla í blóði. Sletturnar náðu frá sokkunum og upp í hár, voru um allt andlit og á berum handleggjunum í fötunum og bókstaflega út um allt. Ég náði nú að þurrka það mesta af mér en blóðið náði að storkna í fötunum og hárinu og mín fór í langa góða sturtu strax og ég kom heim.  Það sem olli þessu var að slangan góða sem veitir blóðinu inn í sjúklinginn hafði bara sprungið og var í tvennt. Það var ekki bara ég sem var öll í blóði heldur sjúklingurinn líka og ýmislegt inni í herberginu.

 

Fyrsta og vonandi síðasta splatter sagan mín

Takk fyrir 8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 11:25:54 / Berglind

I´m alive!!!! :)

Ég er búin að setjast að í Keflavík. Eða er eiginlega búin að gera ráð fyrir því að ég verði þar aðeins lengur en eitt ár, þar sem sparnaðurinn fer hægt af stað. Vona bara að ég haldi mínu plássi þar, húsnæði og vinnu :).

Er búin að  bóka ferð til Flórída í desember. Hlakka geðveikt til að fara. Ætla að fara með Sveini og Ingvari brós og Sæunni mágkonu. Aðaltilgangur ferðarinnar er að heimsækja ömmu og afa og fjölskyldu Jóku móðursystur en svo er náttla ekki hægt að láta framhjá sér fara allan þann skemmtilega munað sem þar er í boði eins og hrikalega rússíbana í Island of adventures og hin yndislegu mall sem eru víða. Það er nú einu sinni desember og ég verð stödd í Flórída, mar verður að versla smáááá. Ekki lítil ástæða til að láta sér hlakka til þar sem veðrið hér á landi er eins og #$"%dk#$//(($ druslu #"%&//(#$! leiðinda borgað fyrir að gera okkur lífið leitt!!! Nota bílinn minn óspart núna í stuttar sem langar vegalengdir þrátt fyrir að vera búin að fá hjólið mitt í Reykjanesbæ.

 

Bíbí og blaka


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 03:18:23 / Berglind

Keflavík og fleira

Jæja er semsagt flutt til Keflavíkur og búin að búa hér í 2 vikur. Byrjuð í nýrri vinnu og er að klára aðlögun í sjúkrahúsinu. Svo bara verður manni dempt í djúpu laugina og þá kveikir maður nú almennilega á heilanum. Ég er að vinna á D-deild sem er bæði lyf og handlæknisdeild og er mjög fjölbreytt. Það er búið að vera mjög fínt, tekið vel á móti mér, nóg að gera og ég skemmti mér alveg stórvel. Ég er enn að koma mér fyrir í íbúðinni, enda kom í ljós að mig vantaði ýmislegt þegar rýmið varð meira en 40 fermetrar. Við getum orðað það þannig að gámurinn sem amma og afi geyma búslóðina sína í er óðum tapa dóti. Ég er búin að vera dunda mér við að henda glósum og velja úr það sem ég tími ekki að henda.

Fór í sumarbústaða ferð um daginn þar sem við vinkonur ætluðum að hittast og njóta náttúrunnar í Brekkuskógi. Það mættu ansi margir á föstudag og húsið fylltist af börnum sem vildu ólm reyna á desibilamörkin í eyrum okkar. Á laugardag hurfu hins vegar allir, nema við einhleypingar ég og Hrefna. Við vorum því bara tvær um kvöldið í bústað og hlógum að því hvað við værum eitthvað glataðar þarna tvær. Reyndum að gera gott úr þessu og drukkur hvítt, fórum í pottinn og gönguferð. Vorum svo sofnaðar um miðnætti. Daginn eftir fórum við þó í hvelli (aðallega Hrefna samt) þar sem Fríða var búin að eiga lítinn prins sem er alveg ótrúlega sætur by the way. Til hamingju með hann Fríða og Óli :)

Næstu helgi verður svo út að borða og djamm með Elsu pelsu áður en hún stingur af til Lúx aftur og Ljósanótt í Kef....Maður verður að standa sig sem Keflvíkingur ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 23:48:58 / Berglind

allt að gerast

eða ...

Er loksins held ég komin í stand eftir lungnabólguna sem ég fékk um daginn og farin að mæta í world class daglega. Þolið ekki alveg upp á sitt besta núna en það verður sko fljótt að koma aftur með þrjóskunni minni. Er búin að vaka allar nætur núna og sofa á daginn. Er nefnilega búin að vera svolítið á næturvöktum og fór til eyja síðustu helgi á ÞJÓÐHÁTÍÐ :) þar sem ég náttla hélt áfram að vaka allar nætur og sofa á daginn. þjóðhátíð stóð undir öllum mínum væntingum og ég skemmti mér stórvel. Veðrið var fínt og eiginlega bara brill á sunnudeginum, þrátt fyrir hrollvekjandi langtímaspár. Uppáhaldið að þessu sinni var flugeldasýningin og trampólínið í garðinum hjá fjölskyldu mágkonu minnar, sló óneitanlega í gegn ;)

Nú er ég komin af stað með að pakka og úfffff hvað ég er komin með hundleið á kössum og krumpuðum dagblöð

 

Bíbí


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 16:32:35 / Berglind

ekki margt að gerast en samt.......

Sumarið er fljótt að líða á Íslandi

Nú er búið að vera svo frábært veður að mér hefur ekki dottið til hugar að eyða einni x-tra mínútu í tölvunni. Sef of lengi yfirleitt, fer út að skokka og í sund þar sem ég hef náð að halda eitthvað af tælandsbrúnkunni eftir. En þar sem ég er bara veik heima núna og á ekkert að vera þvælast úti hvort eð er hangi ég í tölvunni. Það er líka búið að vera rigna hvort eð er :)

Brúðkaup systur hans pabba og hins sænska Mats var um síðustu helgi (fimmtudegi) og var það haldið heima hjá foreldrum mínum. það var glæsilegt eins og brúðkaup eiga til að vera og gaman að skála og sona.....:) Svo héldum við á ættarmót í Varmalandi á föstudeginum, fórum úr steikinni í Reykjavík og festum hæla í rokinu og kuldanum sem lagði af langajökli eða Eiríksjökli, veit ekki hvort en það var allavega anskoti kalt. Svo var bara sungið, borðað, farið í sund og heilsað upp á sænsk, norsk, dönsk og íslensk ættmenni. Við eigum ættir að rekja aftur til langafa míns Guðmundar Sveinssonar. Þetta var bara eins og að vera á samnorrænni ráðstefnu eða eitthvað, en svona er semsagt ættin mín og þessvegna er ég eins og ég er :haha:

Framundan er frí um verslunarmannahelgina og ef eitthver ætlar á þjóðhátið þá er ég sko til!!! Just let me know :)

Flutningar 15.ágúst to KEF og hörkuvinna þar.

 

tjá

Berglind lasarus


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 13:24:08 / Berglind

Komin heim frá Tælandi

Komin heim og finnst það bara allt í lagi. langar samt alveg rosalega að fara aftur út og halda áfram með gamanið, en þá yrði náttla allt þetta skemmtilega fólk líka að vera með :)

Tælandsferðin var svona ólýsanleg og of mikið til að reyna að setja í stutt mál að mínu mati. Þetta er svona eins og þegar maður reynir að taka myndir af öllu en þegar maður kemur heim eru myndirnar ekki alveg að skila öllu. Ég átti mjög góðan afmælisdag. Afmælissöngurinn var sungin 3 fyrir mig yfir daginn, svo fékk ég köku, ís, dekur, góðan indverskan mat og hörku skemmtun um kvöldið í hitanum sem endaði með kælingu í sjónum og fullt af moskítóbitum daginn eftir :lol:   En það var alveg þess virði.

Svo var útskriftin 16.júní. Aðeins rúmlega sólahring eftir heimkomu og því mikil þreyta í gangi. Ætlaði náttla að skemmta mér mikið vel í bænum en var svo bara hálf sofandi. Þraukaði samt til 4 :) . Mín fékk rosa fínar gjafir og er rosaleg ánægð með daginn, þrátt fyrir að hafa beðið í tæpa 3 tíma eftir að fá prófskírteini mitt afhent,  en svona er bara að velja sér yngstu deild HÍ 8|

En nú er alvaran tekin við, maður bara orðin hjúkrunarfræðingur og ber fulla ábyrgð á öllu sem maður gerir :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 10:55:07 / Berglind

Tae

Savadikaaaaaaaa

otrulega fint her i taelandi. otrulega heitt lika :lol:

erum buin ad liggja i leti sidan vid komum til Koh Samui en tar a undan var stift program sem fol i ser markadsferdir, nudd, filasafari, torfaerusafari, sofa i fjallakofum med fullt af ogedslegum og storum poddum, heimsokn til long neck aettbalksins og fullt af flugi. Tegar heim verdur komid hofum vid lokid 9 flugum.

I Koh Samui er mjog fallegt, vid erum i litlum ibudum a strondinni og liggjum tar godan part ur deginum. I gaer forum vid a lady boys show sem er syning med kynskiptingum sem fara i svaka buninga og syngja (maema) og dansa. Showid var mjog flott en eftir showid fludum vid tar sem okkur fannst full langt gengid tarna med afmaelisdreng sem var ut ur heiminum og var ordin berrassadur a svidinu okkur fannst tetta full mikid af hinu goda!!!

Annars er bara buid ad vera fint astand a likamanum, bara orfa bit og engin magapest (wohoooo) vonandi endist tad ut ferdina ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 17:23:40 / Berglind

jeiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

 

 Smá einkahúmor í gangi en skál fyrir okkur ;)

 Hafðu það rosa gott í Tælandi 8) og kíktu kannski á háskólapóstinn þinn

Kv. Guðrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 11:50:11 / Berglind

Ritgerðin farin í prentun

:lol:  Fórum með ritgerðina í prentun áðan og hún verður tilbúin á miðvikudaginn. Þá þurfum við að kynna ritgerðina í 10 mín og svo er þetta endanlega búið og út að borða um kvöldið :D og svo bara til útlanda, reyndar ekki á sama stað, ég fer reyndar líka til Tælands en ekki fyrr en í september. 8)

 Kv. Guðrún

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 12:30:01 / Berglind

Þú sérð um hestinn ég sé um hnakkinn.........

Fór í hestaferð með vinnunni  minni (barnaskurðdeild) í gær. Þarna var samankominn hópur af misreyndu fólki, ég ein af þessum sem er hrikalega óvön. Búið var að safna saman "góðum" lánshestum svo engum yrði hent af baki. Mín mætti með appelsínugulan pollagalla og lúffur og þegar það var dregið upp var sko bara hlegið að manni humpf. Ég fékk því lánaðar eðal reiðbuxur og fingravettlinga og var þá ready to go. Fékk einn góðan hest sem mér persónulega fannst ekki neitt góður, hann rykktir endalaust til hausnum og hlýddi mér ekkert. Þegar við lögðum svo af stað, rauk hann af stað á undan hópnum og ég bara beið eftir því að kastast að baki. En með mín ofursterku læri 8) slapp ég við það og náði loksins að stoppa hrossið eftir að hafa heyrt kallað í fjarska "Berglind stoppaðu hestinn, ekki fara á undan hópnum". Eins og ég hafi verið að gera þetta viljandi  8|  Fékk svo nýjan hest og allt gekk eins og í sögu eftir það :) ........yndislegt....."Fjósalyktin er af honum"  :)

Eftir þennan dugnað fengum við grillara til að matreiða ofan í okkur dýrindis kjöt og með því mmmm svo var bara sungið og trallað. Rosalega gaman!!! :)

 Svo er bara vika í Tæland og 6 dagar í lokalokaverkefnisskil, jedúdda minn:!:

  Verð á Koh Samui á afmælinu mínu


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Hjúkkubloggið